Hreyfing, heilsa og vistvænar samgöngur
Starfsmenn Origo eru duglegir þegar kemur að hreyfingu, vistvænum samgöngum og keppnum sem tengjast hreyfingu eins og undanfarin ár. Árið 2019 byrjaði með heilsuátaki þar sem starfsmenn tóku þátt í heilsutengdum keppnum og sóttu fyrirlestra um málefni tengd andlegri og líkamlegri heilsu.
Fjöldi starfsmanna tók sem fyrr þátt í Hjólað í vinnuna og Origo átti 10 manna lið í WOW Cyclothon keppninni líkt og fyrri ár.
Origo styrkir starfsmenn sína líka til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu. Einnig hafa starfsmenn Origo verið duglegir að mæta í Bose hlauparöðina sem Origo stendur fyrir. Öflugur íþróttaklúbbur var einnig stofnaður innan fyrirtækisins á árinu en meðlimir hans æfa undir styrkri stjórn þjálfara í hádegishléum.
Starfsmenn Origo og dótturfélaga eru einnig duglegir að stunda vistvænar samgöngur. Á árinu 2019 voru um 105 starfsmenn með virka samgöngusamninga.