Guðmundur Jóhann Jónsson
Guðmundur Jóhann Jónsson tók sæti varamanns í stjórn Origo hf. (áður Nýherja hf.) 1999 og hefur gegnt hlutverki vara- og aðalmanns frá þeim tíma til dagsins í dag.
Guðmundur, sem er forstjóri tryggingafélagsins Varðar, útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Seattle University á árinu 1985 og lauk MBA prófi frá Edinborgarháskóla á árinu 2000. Hann hefur auk setu í stjórn Nýherja setið í stjórnum nokkurra annarra fyrirtækja. Hann situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands.